Hóratíus - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Hóratíus Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu Jump to navigation Jump to search Hóratíus Quintus Horatius Flaccus, (8. desember 65 f.Kr. – 27. nóvember 8 f.Kr.), þekktur sem Hóratíus og stundum sem Hóras, var helsta skáld lýrísks kveðskapar í Rómaveldi á valdatíma Ágústusar. Efnisyfirlit 1 Ævi 2 Ritverk 3 Heimild 4 Útgáfur og þýðingar 4.1 Fræðilegar útgáfur 4.2 Skýringarrit 4.3 Þýðingar 4.3.1 Íslenskar þýðingar 4.3.2 Enskar þýðingar 5 Tenglar Ævi[breyta | breyta frumkóða] Hóratíus fæddist í Venosa (Lucania). Hann var sonur leysingja en var sjálfur frjálsborinn. Faðir hans var ekki efnaður en varði þó umtalsverðu fé í menntun Hóratíusar og fluttist með syni sínum til fyrst Rómar til að láta mennta hann. Síðar hélt Hóratíus til Aþenu þar sem hann nam grísku og heimspeki. Hóratíus var ævinlega þakklátur föður sínum fyrir þær fórnir sem hann færði til þess að geta menntað son sinn. Samband hans við föður sinn þykir eitt það hjartnæmasta sem vitað er um frá fornöld. Með hans eigin orðum (athugið að fegurð kveðskaparins glatast í þýðingu): Séu lestir mínir fáir og óverulegir en ég er að öðru leyti heiðarlegur maður, getirðu bent á einungis fáa bletti á annars óaðfinnanlegu yfirborði, geti enginn sakað mig um græðgi, illsku eða óhóf, sé ég hreinn og beinn (svo ég hæli nú sjálfum mér) og sé ég vinum mínum vinur í raun, þá á faðir minn heiðurinn skilinn ... Eins og mál hafa æxlast verðskuldar hann þakklæti mitt og lof. Aldrei gæti ég skammast mín vegna slíks föður né finn ég neina þörf, líkt og margir, til að afsaka mig fyrir að vera sonur leysingja. Satires 1.6.65-92 Eftir morðið á Júlíusi Caesar gekk Hóratíus í herinn undir stjórn Brútusar. Hann tók þátt í orrustunni við Filippí en bjargaði lífi sínu á flótta. Hann sneri aftur til Ítalíu eftir að þeir sem höfðu barist gegn hinum sigursæla Octavíanusi höfðu verið náðaðir. Faðir hans var þá látinn og jörð þeirra hafði verið gerð upptæk. Hóratíus bjó við sára fátækt. Eigi að síður gat hann keypt sér stöðu sem ritari á skrifstofu quaestors (gjaldkera) og það gerði honum kleift að draga fram lífið og iðka kveðskap sinn. Hóratíus tilheyrði sama hópi skálda og menntamanna og Virgill og Lucius Varius Rufus. Þeir kynntu hann fyrir Maecenasi, vini og trúnaðarmanni Octavíanusar Ágústusar. Maecenas varð styrktaraðili Hóratíusar og náinn vinur og gaf Hóratíusi jörð nærri Tibur, í dag Tivoli. Ritverk[breyta | breyta frumkóða] Saturae, 1577 Fornfræðingar álíta Hóratíus almennt vera, ásamt Virgli, mestan allra skálda á latínu. Fjölmargir latneskir frasar sem enn eru í notkun eru komnir úr kvæðum Hóratíusar, t.d. „carpe diem“ (nýttu daginn), „dulce et decorum est pro patria mori“ (sætt er og viðeigandi að deyja fyrir föðurlandið) og „aurea mediocritas“ (gullni meðalvegurinn). Kvæði hans eru undir grískum bragarháttum (eins og verk elstu skáldanna á latínu), allt frá sexliðahætti, sem hæfir latínunni vel, til flóknari bragarhátta eins og saffískum hætti, sem hæfa latínunni og latneskri setningafræði ekki alltaf jafnvel. Enginn annar höfundur á latínu notar þessa hætti af jafnmiklum þokka, jafnmikilli nákvæmni og léttleika, þótt Catullus komist stundum nálægt því. Verk Hóratíusar eru (í tímaröð): Sermonum liber primus eða Satirae I [1] (35 f.Kr.) Epodon [2] (30 BC) Sermonum liber secundus eða Satirae II [3] (30 f.Kr.) Carminum liber primus [4] (23 f.Kr.) Carminum liber secundus [5] (23 f.Kr.) Carminum liber tertius [6] (23 f.Kr.) Epistularum liber primus [7] (20 f.Kr.) Ars Poetica eða Bréf til Písóanna [8] (18 f.Kr.) Carmen Saeculare [9] (17 f.Kr.) Epistularum liber secundus [10] (14 f.Kr.) Carminum liber quartus [11] (13 f.Kr.) Heimild[breyta | breyta frumkóða] Fyrirmynd greinarinnar var „Horace“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 14. maí 2006. Útgáfur og þýðingar[breyta | breyta frumkóða] Fræðilegar útgáfur[breyta | breyta frumkóða] E.C. Wickham (ritstj.), Q. Horati Flacci Opera (Oxford: Oxford University Press, 1901). Oxford Classical Texts útgáfa m. handritafræðilegum og textafræðilegum skýringum. Skýringarrit[breyta | breyta frumkóða] Horace, Epistles: Book I. Roland Mayer (ritstj.) (Cambridge: Cambridge University Press, 1994). Horace, Epistles: Book II and Epistle to the Pisones (Ars Poetica). Niall Rudd (ritstj.) (Cambridge: Cambridge University Press, 1989). Horace, Epodes. David Mankin (ritstj.) (Cambridge: Cambridge University Press, 1995). Þýðingar[breyta | breyta frumkóða] Íslenskar þýðingar[breyta | breyta frumkóða] Quintus Horatius Flaccus, Í skugga lárviðar. Helgi Hálfdanarson (þýð.) (Reykjavík: Vaka-Helgafell, 1991). Enskar þýðingar[breyta | breyta frumkóða] Horace, Odes and Epodes. Niall Rudd (þýð.) (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 2004). Horace, Satires, Epistles, Ars Poetica. H.R. Fairclough (þýð.) (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1999). Tenglar[breyta | breyta frumkóða]   Wikivitnun er með safn tilvitnana á síðunni Horatius Espace Horace (á frönsku) Verk Hóratíusar á The Latin Library Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Hóratíus&oldid=1669130“ Flokkar: Fólk fætt árið 65 f.Kr. Fólk dáið árið 8 f.Kr. Rómversk skáld Leiðsagnarval Tenglar Ekki skráð/ur inn Spjall Framlög Stofna aðgang Skrá inn Nafnrými Síða Spjall Útgáfur Sýn Lesa Breyta Breyta frumkóða Breytingaskrá Meira Leit Flakk Forsíða Úrvalsefni Efnisflokkar Handahófsvalin síða Hjálp Verkefnið Nýlegar breytingar Nýjustu greinar Samfélagsgátt Potturinn Fjárframlög Verkfæri Hvað tengist hingað Skyldar breytingar Hlaða inn skrá Kerfissíður Varanlegur tengill Síðuupplýsingar Vitna í þessa síðu Wikidata hlutur Prenta/sækja Búa til bók Sækja PDF-skrá Prentvæn útgáfa Í öðrum verkefnum Wikimedia Commons Wikiquote Á öðrum tungumálum Afrikaans አማርኛ Aragonés العربية مصرى Asturianu تۆرکجه Башҡортса Žemaitėška Беларуская Беларуская (тарашкевіца)‎ Български Brezhoneg Bosanski Català Čeština Cymraeg Dansk Deutsch Zazaki Ελληνικά English Esperanto Español Eesti Euskara فارسی Suomi Võro Français Furlan Gaeilge Galego עברית हिन्दी Fiji Hindi Hrvatski Magyar Հայերեն Interlingua Bahasa Indonesia Ido Italiano 日本語 ქართული Қазақша 한국어 Kurdî Kernowek Latina Lingua Franca Nova Lietuvių Latviešu Malagasy Македонски മലയാളം Монгол मराठी Bahasa Melayu Nāhuatl Nederlands Norsk nynorsk Norsk bokmål Occitan ਪੰਜਾਬੀ Polski Piemontèis Português Română Tarandíne Русский Sardu Sicilianu Srpskohrvatski / српскохрватски Simple English Slovenčina Slovenščina Српски / srpski Seeltersk Svenska Kiswahili தமிழ் Tagalog Türkçe Татарча/tatarça Українська Oʻzbekcha/ўзбекча Tiếng Việt Volapük Walon Winaray 吴语 中文 粵語 Breyta tenglum Þessari síðu var síðast breytt 1. apríl 2020, klukkan 21:11. Textinn er gefinn út samkvæmt Creative Commons Tilvísun-DeilaEins leyfi. Sjá nánar í notkunarskilmálum. Meðferð persónuupplýsinga Um Wikipediu Fyrirvarar Farsímaútgáfa Forritarar Statistics Yfirlýsing vegna vefkakna